Rauður, svona rétt í morgunsárið | |
fimmtudagur, ágúst 02, 2007
klakinnUxinn wer mættur on Klakinn.... tel: 8676759
fimmtudagur, júlí 12, 2007
KiðlingurinnÞá er fyrsta afkvæmi uxans mætt í heiminn. Lítil stúlkukind, löt, sísvöng og myndaleg.Hressandi....... Uxinn....þá veit maður að allt virkar!!
mánudagur, maí 07, 2007
UppáhaldsSá uppáhalds bíómyndina um daginn... Bring It On er háskóla paródía með erótískum undirtón. Fjallar myndin um erfiðleika unglingsárana og lýsir á dramatískan hátt sögu hinnar margslungnu Torrance Shipman. Má segja að áhorfendur geti fylgst með hvernig ástir og svik móta hinn gríðarsterka perónuleik Torrance, en þessi lífsreynsla á eftir að fleyta Torrance í gegnum þann erfiða heim sem hin almenna háskólaklappstýra þarf að glíma við. Hver leiksigurinn á fætur öðrum og ekki síst frá hinni stórkostlegu Kristen Dunst sem túlkar Torrance á ógleymanlegan hátt. (Enda finnst höfundi ekki furðulega að druslan hafi fengið hlutverk á borð við Mary Jane í Spiderman). Enn einn leiksigurinn frá undralufsunni í þvílíkri stórmynd...... Uxinn.........oj bara og ullabjakk, en horfði samt á alla myndina!! p.s. held að hún gæti eyðilagt hljóðlausa klámmynd
föstudagur, mars 02, 2007
hmmm......Which Trainspotting Character Are You? Uxinn.....On-Off junkie?
fimmtudagur, febrúar 22, 2007
Detti mér allar kýr úr höfði, dauðar eða lifandijá skemmtilegt...nú þurfa graðir klakabúar víst bara að snúa sér aftur að því að glápa á rjóðar kafloðnar rollur í framboðshugleiðingum, því ekki varð neitt af þessari ráðstefnu. Enda eru óskrifuð lög fyrir því að einungis íslenskt kjöt megi vera á boðstólnum fyrir íslendingin. Einhverjir segja að þarna hafi lýðræði sýnt sig í bestu mynd en ég er nú ennþá íslendingur og man ekki því að gefið mitt leyfi. Kannski þar sem ég er ekki femínisti, biskup, borgarstjóri, þingmaður, í framboði eða bóndi(finnst samt ennþá skrýtið að þeir hafi verið á móti) þá skiptir mín skoðun ekki máli. Mér finnst reyndar eins og mín skoðun skipti aldrei máli því ekki gaf ég leyfi fyrir stríðsstuðningi, álveri, strípum eða hvalveiðum. Aftur á móti finnst mér gaman að vera allsber, mér finnst bleikt og blátt hressandi (enda nenni ég ekki að lesa Mannlíf, Engar myndir sko) og fyrst og fremst finnst mér erlendir peningar á leið á klakan skemmtilegt. En þetta er auðvitað bara mín skoðun.... En einhvern veginn finnst mér að við hefðum bara átt að halda áfram að fylgjast með nágrannanum og leyfa túristunum að túristast, hugsa að þá hefðum við líka átt fleiri hvalveiði vini. Uxinn....hver ætli borgi fyrir allar pantanirnar (hótel, flugfar, jeppaferðir, miðbæjarferðir.....)!!
mánudagur, febrúar 19, 2007
Klá.....................................................miðæj hvað ég er glaður að lýðnetið og vefdagbækur séu til því annars myndum við sennilega aldrei heyra um eða í öllu skoðunarglaða fólkinu sem við eigum á litla landinu okkar.......og ég þykjist líka nokkuð viss um að orðið "klám", í hvaða mynd sem er, hristir alltaf duglega upp í þessum sömu einstaklingum. En mig hlakkar alveg ískyggilega mikið til að sjá hvað verður í fréttunum næst nú þegar búið verður að klámvæða klakann, Anna Smith dauð og Britney Hárlaus. Uxinn....félag bollubræðra ætlar að hittast, bera sig og raka á þingvöllum 17. júní. Öllum mótmælendum er bent á Bjössa Bollu, Lilla klifurmús og landstjórann í grímsey, en þeir munu glaðir standa fyrir svörum...
mánudagur, janúar 29, 2007
JJJJeeeeiiiiiiLitli uxinn er svo glaður í litla hjartanu sínu í dag........Uxinn á nefnilega 6 miða á Pearl Jam 26. júni í kaupmannahafnarborginni.......... Uxinn......jeðsðsðsðsðsðsðsð
|