Rauður, svona rétt í morgunsárið | |
laugardagur, desember 13, 2003
Gullkorn Uxans #2Þessi tímaskekkja er eitthvað vitlaus!!Uxinn....hvað var það heillinn?
fimmtudagur, desember 11, 2003
Gullkorn Uxans #1Það er ekki á hverjum degi sem maður fær loðfóðraða ull!!Uxinn...kannski ekki svo heill
Ja hérna helvískurMaður hefur nú verið eitthvað hálf latur við að skrifa. En vonandi fer það nú að breytas. Annars var ég að enda við að lesa rosalega sögu og vil ég bara benda öllum sem lesa þetta að kíkja á hana, því hún var ekki bara vel skrifuð heldur er maðurinn sem skrifar hana helvíti seigur að einfaldlega geta skrifað þetta. Takk fyrir mig verð ég bara að segja!Annars er allt fínt að frétta úr baunalandi. Við elskurnar skelltum okkur á Petu síðustu helgi þar sem var djammað og étið, djöfull geta sumir étið mikið, mest alla helgina. Hittum gamlan félaga að nafni Gunnar Þór, "Gunnar Þór, hver er það?" segja margir og það sögðum við frændur líka þegar okkur barst frétt um einhvern Gunnar sem við áttum að þekkja. Sennilega þekkja hann fleiri undir nafninu Gunna Niels. Hann var hress og vel búinn í alla staði enda nýbúinn að flytja inn 3 tonn af bjó, sem eiga víst að vera til einkaneyslu, hmmm! Annars var hápunkturinn hjá Ómari þegar við fengum að fara í ferjuna! Það fannst honum Begga litla gaman enda minnti þetta hann á hvað er gaman í baði. Svo var hann Jónsson Eiríksson að mæta í hús og munum við eyða helginni í hreina vitleysu með því greyi. Sennilega verður það hrein gleði og hamingja. Já og langlokan hann bróðir minn, litli símapjakkurinn, náði loksinsbílprófinu. Til hamingju kallinn!! Uxinn.... ég er svo góða að synda!
|