Dvalinn
Uxinn varð hálfþreyttur þarna í nokkra mánuði en er allur að koma til. Andleysið er að renna af uxanum og hann er óðum að rísa úr ösku áður útbrunnins tudda....
Eftir að Uxinn hefur bætt sig í dagbókarskriftum ætlar ann að reyna að bæta heiminn. Hann er hættur að teikna, það urðu allir hálfgeðveikir útaf múhammeð dótinu. Hættur að hósta á fugla. Hættur að kippa í ann á fjölförnum götum. Og loks ætlar hann að smæla framan í heiminn með varalit og gálubrosi...
Uxinn...beit sig í stóru tánna og bar!!
Sveitadólgurinn
Djöfull hlakkar mig til þegar ég verð orðin hálfelliær bóndi í Selvognum. Þá ætla ég að ræna ungmeyjum og puttalingum úr nærliggjandi sveitum og tjóðra þær í hlöðunni hjá mér. Svo þegar ég kíkji til Kjarrastaðabræðrana í Götu, get ég montað mig á nýja gripnum....
"Heyrðu Rosso, heldurðu ekki bara að ég hafi náð í eina í gær." "Nú, og er það laglegur gripur?". "Tja, hún er nú reyndar germönsk en hún var helvíti spræk..."
Uxinn...þú ert nú meiri tjallinn
tjellingin!!
Konan á ammæli í dag. Til Hamingju!!
Uxinn...Hressandi.
Íslmörk
Las frétt í gær, sem er nú ekki frásögufærandi. Nema hvað að ónefndir íslenskir kaupmenn buðu í fyrirtækið sem sér um og rekur Parken, þjóðarleikvang Dana. Danir að vísu neituðu tilboðinu. Enda hefði verið hálfömurlegt að danska landsliðið hefði ekki getað keppt vegna þess að Stuðmenn væru með tónleika í boði Baugs.
Sorry but Stuðmenn are playing, but you are welcome to drop by next week...
Uxinn....hugsa að ég hefði mætt
| |