Rauður, svona rétt í morgunsárið | |
sunnudagur, ágúst 29, 2004
ÚtigangsmaðurUxinn brá sér til íslands í smá frí í tvær vikur. Sem var helvíti hressandi. Nema hvað að Uxinn fór með fór með yfirmönnum metró-sexjúal deildar frönsku útlendingasveitarinnar, þeim Geir og Garp, í smágönguferð. Þetta var að vísu engin smá gögnuferð því Uxinn dó hér um bil þrisvar á leiðinni enda engum venjulegum manni ætlað að feta í fótspor Geirs sem ku vera með aðrar lengstu lappir á vesturlandi og er skreflengdin og göngulagið eftir því. Garpur stiklaði þetta eins og kiðlingur á beit og ef vel var að gáð gat maður séð á honum dindilinn. Uxinn huxaði með sér í byrjun göngu að þetta yrði nú allt í lagi því að vinur hans hann Svenni Sveitti ætlaði með og reiknaði Uxinn því með að þeir yrðu á svipuðum hraða. En NEI Svenninn var greinilega búinn að brenna öllu lýsinu og farinn að nota Amfetamín stíla því hann ekki bara lúkkaði best í úthugsuðum göngugallanum heldur tók hann þetta á svona bara nettu joggi. Svenninn er greinilega að gabba þegar hann talar um óform. Annars var þetta frábært enda var tindurinn sigraður og reyndar Uxinn líka. Annars var Greips göngumanns sárlega saknað í ferðinni en hann var víst í Frakklandi í æfingarbúðum fyrir næstu ferð. Uxinn.....held ég gangi heim, held ég...
Andskotinn er mætturjæja þá er eitthvað verið að reyna taka sig á í þessum blogg málum. verið að breyta og lofa skriftum en eins og mamma sagði alltaf þá er best að lofa ekki of miklu..Uxinn... jæja!!
|