Rauður, svona rétt í morgunsárið | |
fimmtudagur, febrúar 19, 2004
yes mr.Dawson..Herra Dawson (ég), Demi og Sharon Já það er sko sannarlega langt síðan að ég skrifaði síðast enda verið mikið að gera. Eins og þið sjáið elskurnar mínar þá er ég farinn að leika í sjónvarpsþáttunum Dawsons Creek II: The Two Towers. En nýja serían í þessari sívinsælu þáttaröð hefur nú þegar fengið frábæra dóma í Danska ríkissjónvarpinu og hefur rúv meðal annars haft samband við mig persónulega. Þessi sería er nokkuð frábrugðin þeim fyrri enda á þessi sér stað 30 árum eftir þá fyrstu. Dawson hefur stofnað kleinuhringjagerð þar sem hann og báðar tjellingarnar hans, Dawson mér til mikillar hamingju er hormóni, vinna hörðum höndum við að baka pulsuhringi. En það er nú einmitt gaman að segja frá því að Demi nokkur Meir og Sharon Sten leika einmitt tjellingarnar. Nú þegar hafa verið teknir upp 14 þættir en áætlað er að um 436 þættir verði teknir upp núna á næstu vikum. Og er talað um að þeir eigi eftir að slá út "Ölfus 9010815" unglingaþættina. Uxinn....ropar og rekur við!!
|