Rauður, svona rétt í morgunsárið | |
miðvikudagur, apríl 14, 2004
Þetta er svo sannarleg skrýtinn heimur..Greyið hann taðbaukur frændi setti inn lítinn sorabrandara, sem mér fannst bara frekar fyndinn, og það var eins og heimsendir nálgaðist. Allir (frekar allar) urðu brjálaðir og nánast sökuðu drenginn um að dreifa klámi og sora á netinu (mér finnst það nú samt ekki vera neinn sori þ.e. klámið). Hann er veit víst ekki betur!! Tja maður spyr sig bara hvort það sé bara bannað að vera smá perri.Annars er mér ennþá í huga þegar ég bauð mig framm sem formaður nemendaráðs í FSU fyrir hönd Karlrembuklúbbsins. Allur salurinn hló þegar ég lýsti því hvernig við ætluðum að breyta skólanum í betra umhverfi fyrir karlmanninn. Þarna féllu ýmsar setningar sem feministum hefði þótt ófyndið. Eins og "mánudagsbarningurinn", "þjónustan við karlmanninn þegar honum hentaði" og margt fleira mikið skemmtilegra. Kannski ég hafi valdið bylgju kynferðisafbrota á meðal framhaldskólanema á suðurlandi, Tja hver veit. Já maður verður svo sannarlega að passa sig þegar maður birtir sínar alsaurugustu hugsanir á netinu. Alltaf er einhver sem sér í gegnum þig og lætur umheiminn vita af því hvað maður sé mikill dónakall. Maður ætti kannski bara að stofna félag dónakalla á íslandi. Híhí við gætum hist í laumi upp í Öskjuhlíð og sagt dónakalla brandara. Jafnvel hlaupið naktir í dögginni og látið norðanvindinn leika við skinnpokan og hitt. Svo gætum við haft svona klíkustríð, við dónakallarnir á móti Feministum og öðrum svona ÁmótiDónaköllum félögum. Já hvað það væri gaman. Já svei mér þá ef ég er ekki bara forfallinn dónakall og óbjóður. Uxinn....Yfirmaður Dónakallafélagsins!
|