Rauður, svona rétt í morgunsárið | |
mánudagur, apríl 05, 2004
Jæja..Eins og Beggi minntist á þá hef ég verið á tveggja vikna "Bender" og því ekki skrifað í nokkurn tíma. En nú lofa ég breytingum og framförum að hætti danskra konunga og finnskra bústólpa.Ein af ástæðunum fyrir þessu kenderíi mínu er sú að ég hef verið að endurskrifa söngleik, nánar tiltekið "Hárið". Mörgum finnst þetta full djarft af mér en eins og allir vita þá er "Gumminn sjaldan einn". Hef ég nú rætt um þetta við Begga og mun hann endusemja tónlistina og króatíski þjóðdansameistarinn Toni mun sjá um að semja dansana. Það sem er ætti nú að vera áhugavert fyrir okkur fyrrum, núverandi og verðandi félaga í Ölfusi er að söngleikur þessi er byggður á æskuminningum mínum frá Höfn nokkurri kenndri við Þorlák. Og mun nafn leiksins minna okkur brottflutta á velsæmdina, fegurðina og hina sætu lykt peningana. Já "Lifi lýsið" mun nafnið vera og þykir mér það æði gott og beinskeytt. Eins og er vil ég ekki vera setja inn brot úr söngleiknum en strax eftir páska munu við hefjast handa með texta, og svo mynda og lagabrot fyrir ykkur sem æst viljið fylgjast með. En ég tel nú óhætt að kjafta frá hluta af þeim leikurum sem hafa verið valdir í þetta en Séra Baldur mun leika Claude, Geiri gamli verður hinn sífagri Berger og svo er það rúsínan í pylsuendanum en við höfum fengið Ragnar nokkurn Íþróttarmálaráðherra til að leika Sheilu en hann þykir mikill og góður drama leikari enda fáir sem geta grátið eftir pöntunum. (enda náttúrulega kvennlegur að vexti sem að skapi) En ég mun ekki tjá mig meira um þennan leikling fyrr fyrstu senurnar verða tilbúnar. Uxinn...nú hefði ég sko fallið sundi!!
|